Týnd og fundin!
Ég er hérna og við öll á lífi. Einhvern veginn datt ég út úr bloggrútínunni og hef ekki hunskast til baka fyrr en nú. Hjá okkur gengur allt sinn vanagang í sveitasælunni. Haddi minn vinnur eins og þræll í húsinu, er nú að klára að seta upp grindur fyrir milliveginna. Þetta gengur allt á sínum hraða eins og búast má við þegar að hann er einn að moðast í þessu mest allan tímann. Við vonum að við verðum komin inn í helminginn af húsinu með haustinu. Annars erum við hætt að vera með ágiskanir og yfirlýsingar í þá veru þar sem það stenst aldrei neitt sem við segjum :)!
Eva Rún verður 8 mánaða 2. ágúst og er orðin ótrúlega stór stelpa. Hún er afskaplega rólegt og þægilegt barn sem lítið þarf að hafa fyrir. Hún er líka alveg svakalegur grínari og reynir yfirleitt allt sem hún getur til að fá fólk til að hlægja að sér og með sér. Dagvistunin gengur mjög vel þó hún sé svona lítil ennþá og mamman er farin að verða nokkuð róleg í vinnunni, þó aðskilnaðurinn hafi verið mjög erfiður fyrst.
Lengi framan af héldum við að hún væri með tunguhaft því að hún rak tunguna aldrei út úr sér. Fyrir 2 vikum fann hún svo allt í einu á sér tunguna og nú ullar hún í tíma og ótíma á alla sem hún sér of finnst það ekki lítið fyndið.
Hér á eftir koma nokkrar sumarmyndir af skvísunni, sem fór í náttúrusmökkun um daginn :)
Sæt í sólinni
