mánudagur, september 29, 2008

Spurt er: Afhverju er salt í sjónum?



Svar 1:
Vegna þess að salt er hættulegt fyrir hjartveikt fólk og getur því ekki verið í svo miklu mæli á þurru landi.

Svar 2:
Vegna þess að við söltum poppið okkar svo mikið og pissum þar af leiðandi öllu saltinu í sjóinn.

Svar 3:
Til að saltfiskur hafi einhvern stað til að búa á.

Svar 4 - leiðinlega skýringin
Vegna þess að grunnvatn og yfirborðsvatn leysa upp sölt efnasambönd í jarðvegi og bergi. Þessi efnasambönd renna svo með farvatni til sjávar með þeim afleiðingum að sjórinn er saltur.

fimmtudagur, september 25, 2008

Tilkynning!

Vegna fjölmargra áskorana hef ég ákveðið að taka að mér hið erfiða verkefni að halda úti vísinda- og sjálfshjálpardálki hér á síðunni. Ykkur er því frjálst að senda mér fyrirspurnir um ykkar hjartans mál eða aðkallandi vísindalegar ráðgátur. Ýtrustu nafnleyndar verður gætt.

Kveðja
Doktor Búbblissjös