miðvikudagur, desember 21, 2005

Jólin eru að koma!

Jæja þá er bara einn dagur í suðurferð og jólafrí :) ...sem þýðir að í dag er 21. desember sem er ekki bara stysti dagur ársins heldur líka afmælisdagur rauðhærða víkingsins míns :) Nú tekur sólin að hækka á lofti aftur og brúnin lyftist vonandi aðeins á yours trúlí í kjölfarið. Eftir vinnu í dag verður hafist handa við að pakka og gera klárt svo að við getum hoppað beint upp í bílinn eftir vinnu á morgunn. Það tekur um 7 tíma að keyra þetta svo að það er eins gott að halda vel á spöðunum ef maður ætlar að komast fyrir skötuna á Þorlák :) Ég býst við að ekki heyrist mikið í mér yfir hátíðarnar svo að ég óska öllu aðdáendum mínum nær og fjær gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Vonandi hitti ég ykkur sem flest yfir hátíðarnar.

Jólafimma
Hrabbý

mánudagur, desember 19, 2005

Your results:
You are Spider-Man
Spider-Man
90%
Superman
65%
Green Lantern
60%
The Flash
55%
Iron Man
50%
Robin
45%
Supergirl
40%
Wonder Woman
40%
Hulk
40%
Catwoman
35%
Batman
15%
You are intelligent, witty,
a bit geeky and have great
power and responsibility.
Click here to take the "Which Superhero are you?" quiz...

föstudagur, desember 16, 2005

Ljósadýrðin heldur áfram!

Nú er svo komið að ég þori ekki út úr húsi án þess að vera með myndavélina á mér. Það margborgaði sig í dag þegar að ég skrapp til læknis því þessar myndir voru teknar á heilsugæsluhlaðinu. Þetta er alveg ótrúleg sjón...eru til orð yfir svona??? Ég verð bara dolfallin og væmin yfir FEGURÐ HEIMSINS :)

Annað gleðiefni er að við erum laus við alla hvolpana nema hann Hómer okkar sem við ætlum að halda :)






fimmtudagur, desember 15, 2005

Glitský!

Í gær glóði himininn af furðulegum fyrirbærum, s.k. glitský. „Venjulegu“ skýin voru rauðgullin inn á milli. Ég hef sjaldan séð neitt eins fallegt. Ég gat varla unnið í gær ég var svo upptekin af því að horfa út um gluggann, á milli þess sem ég hljóp út og tók myndir. Gliskýin urðu ennþá meira áberandi eftir að fór að dimma. Hér eru nokkrar af myndunum.







mánudagur, desember 12, 2005

Hellú hellú

Jú ég er á lífi. Þið getið hætt að örvænta :) Afhverju hefur kerlingin ekki skrifað? Jahh..það er vona að þið spyrjið gott fólk. Ætli ég hafi ekki bara verið upptekin af því að gera ekki neitt! Hugurinn er að sjálfsögðu kominn hálfa leið í jólafrí..ég er orðin svo spennt að komast í bæinn að það hálfa væri það. Haddi tekur þessu meira með jafnaðargeði eins og hans er von og vísa. Ég er farin að finna það núna að Fáskrúðsfjörður (eins yndilegur og hann er nú) er heeeeeeeeeeeldur langt frá mannabyggðum (ef maður getur orðað það þannig). Er á fullu að finna jólagjafir handa starfsfólki Austurbyggðar. Læt vita betur af mér síðar...Jólaálfurinn :)