Ég lifi!
Jæja þá er ég mætt aftur!! Þetta er búinn að vera afskaplega viðburðaríkur mánuður.
Eins og flestir sem þetta lesa vita þá gekk brúðkaupið bara vel fyrir sig þrátt fyrir brösulega byrjun á helginni (say no more). Athöfnin sjálf var alveg eins og við vildum hafa hana, látlaus og létt. Veislan var svo heillöng og skemmtileg og endaði í stanslausu djammi langt fram á morgun. Brúðhjónin skriðu í bólið um hálf fimm leytið en þá voru sko aldeilis ekki allir hættir!
Við fengum mikið af góðum gjöfum þ.á.m. peninga fyrir brúðkaupsferðinni. Við náðum að safna um 410 þúsund krónum í sarpinn og ættum nú að komast í þokkalegustu ferð fyrir það held ég bara :) Við erum allavega himinlifandi yfir þessu öllu saman. Ég vil biðja alla þá sem luma á myndum frá stóra deginum að láta mig hafa eintak ef þeir mögulega geta. Ég ætla að reyna að safna þessu saman og jafnvel birta einhverjar hér á blogginu.
Eftir brúðkaupið vorum við að ráðskast með Vilmari bróður og Önnu í Dæli á meðan að gömlu hjónin brugðu sér til Skotlands. Það gekk allt saman bara nokkuð stórslysalaust held ég en var þó að sjálfsögðu ekki án ævintýra líka. Það var rosalega gott að vera í sveitinni og mig langaði eiginlega ekkert að fara þaðan aftur. En svona er nú bara lífið maður verður stór og flýgur úr hreiðrinu og þarf síðan að díla við alls konar heimþrá örugglega allt sitt líf því að æskuheimilið er alltaf HEIM er það ekki? Römm er sú taug og svo framvegis.
Eftir ráðsmennsku fórum við svo í sumarbústað í Úlfsstaðaskógi með Döggu, Óla og krökkunum. Það var alveg rosalega gaman! Þar var mikið spilað, drukkið og étið þá viku maður uss uss uss. Svo sýndum við þeim náttúrulega alla dýrðina hér fyrir austan, höfuðbólið Fáskrúðsfjörð, Steinasafnið og allt tilheyrandi.
Á mánudaginn bitchslappaði raunveruleikinn okkur svo á fyrsta vinnudegi og hversdagsleikinn tók við af fullum krafti. Það var nú alls ekki slæmt þó að það væri erfitt að mæta fyrsta daginn. Við erum sem betur fer svo heppin að við erum í góðri og skemmtilegri vinnu sem gaman er að mæta í.
JÁ!! Ég er nú líklegast að verða amma því að hún litla ferfætta dóttir mín er búin að vera að stunda óábyrgt kynlíf með allavega tveimur strákum síðustu vikur. Maður er svo gjörsamlega rasandi bit...hvaðan hefur hún þetta eiginlega ;-)?
Jæja nóg í bili
Hrabbý Þorkelsson
