
Finnlandsferðin tókst mjög vel þrátt fyrir ákveðna byrjunarörðugleika sem fólu m.a. í sér að missa af 2 flugum. En fall var fararheill og restin af ferðinni var mjög ánægjuleg. Ég skellti mér að sjálfsögðu í sauna og baðaði mig í vök...brrrrr...það var frekar kalt en mjög skemmtilegt. Ég segi ykkur ferðasöguna betur seinna. Þegar að ég kom heim á sunnudaginn eftir 15 tíma ferðalag biðu mín kertaljós (sjá mynd)og sjóðheitt freyðibað. Ég á ÆÐISLEGAN mann :). Í fyrramálið fljúgum við svo til Oslóar þar sem Vilmar og Anna bíða eftir okkur. Svo keyrum við til Gautaborgar þar sem við verðum um páskana. Meira síðar og gleðilega páska.
