miðvikudagur, september 28, 2005

Brúðkaupsmynd

Var að fá senda eina af brúðkaupsmyndunum! :)

Ég hef verið klukkuð!

Ég hef verið bloggklukkuð af Eddu vinkonu sem þýðir að ég þarf að deila með ykkur 5 persónulegum staðreyndum um sjálfa mig.

1. Ég er með PCOS (Poly Cestic Overy Syndrome) sem getur gert mér mjög erfitt fyrir þegar að kemur að því að eignast börn. Til þess að komast í frjósemismeðferð hjá tæknifrjóvgunardeild þarf ég að léttast um 7 kg í viðbót við þau 13 sem ég hef misst á síðustu 2 árum. Þessi sjúkdómur gerir mér aftur á móti afskaplega erfitt fyrir að léttast og því á ég stundum soldið erfitt.

2. Ég hef verið í megrun frá því að ég man eftir mér.

3. Mér fannst ég ótrúlega fallegt barn :)

4. Ég er ástfangin af rauðhærðum og freknóttum strák sem ég hélt að væri hreinlega ómögulegt þegar að ég var yngri.

5. Ég held stundum að ég hafi átt að fæðast sem strákur!

Ég klukka Rögnu Richter :)

Bonjour!

Jæja þá er maður kominn heim úr opinberu heimsókninni. Þetta var ótrúlega skemmtilegt og í alla staði bara mjög sérstök upplifun.

Við lentum í París um hádegi á miðvikudeginum en Alexandra og Valerie (starfsmenn Gravelines) tóku á móti okkur á flugvellinum. Þá tók við 3 tíma keyrsla til Gravelines í rúmlega 20 stiga hita (úr 7 gráðum í Keflavík). Í Gravelines komum við okkur fyrir á hótelinu og snæddum síðan kvöldverð með nokkrum gestgjöfum. Þetta reyndist vera forsmekkurinn að 5 daga allsherjar borðhaldi þar sem hver máltíð var það minnsta 3 rétta og tók styst 2 og hálfan tíma. Frakkar eru algjörir maraþonmeistarar í borðhaldi. Eftir að hafa smakkað vel á víni og bjór skriðum við svo örþreytt í rúmið.

Á fimmtudagsmorguninn lá leiðin á sædýra/vísindasafnið í Nausicaá, svo var náttúrulega etið og eftir það lá leiðin til Bolougne þar sem gjörsamlega ofvirkur leiðsögumaður lóðsaði okkur um gamla bæinn og sagði okkur upp og ofan af sögu staðarins. Hennar uppáhalds orð voru alright, clear og ok :) Þetta var rosalega athyglisvert og skemmtilegt og við skemmtum okkur konunglega. Um kvöldið var svo mikið borðað drukkið og hlegið í Gravelines ásamt góðu fólki.



Föstudagsmorgninum eyddum við svo á vikulegum götumarkaði í Gravelines þar sem hægt var að kaupa allt á milli himins og jarðar. Kaupóðir Íslendingar komu með heilu töskurnar útbelgdar af gallabuxum á 14 evrur og úlpum á 15 evrur. Skrítna ég verslaði samt ekki neitt heldur naut þess bara að ganga um og anda að mér mannlífinu (og einstaka illa lyktandi osti).




Af götumarkaðnum fórum við svo að skoða vitann í Gravelines. Þar príluðum við upp og skoðuðum útsýnið ásamt því að fræðast aðeins um söguna.
Þaðan lá leiðin í mollið Cité Europe í Calais þar sem snæddur var hádegisverður og svo verslað aðeins meira. Þar tókst mér að kaupa mér 2 flíkur (dugleg). Um 5 fórum við aftur til Gravelines þar sem við vorum viðstödd opnun á ljósmyndasýningu þar sem sýndar voru myndir frá Íslandi. Myndirnar voru teknar af tveimur frönskum stelpum sem höfðu dvalið á Íslandi við vinnu. Þar var að sjálfsögðu boðið upp á drykki og snarl (hádegismat lauk um 14:00 og þetta var kl. 17:00). Að þessu loknu var svo farið í kvöldverð í veitingahús í Le Hutte sem er gamalt hverfi í Gravelines. Þar voru einnig fulltrúar frá þýskum og enskum vinabæjum Gravelines. Fulltrúar þýska vinabæjarins voru 3 fegurðardrottningar sem höfðu þann vafasama titil Ungfrú súrmeti eða Miss Pickles (tíhí). Þær hlutu titilinn þó ekki í hefðbundinni fegurðarsamkeppni heldur er hann keyptur af foreldrum hverrar stúlku. Þeir sem bjóða hæst fá titilinn fyrir dóttur sína og næstu 2 fá að vera fylgdarmeyjar hennar. Þetta var nú allt saman hálf hallærislegt fannst mér, en þær voru þarna samt sem áður í galakjólunum sínum og með sprotana :) Þetta kvöld endaði að sjálfsögðu frekar rakt eins og fyrri kvöld en þetta var engu að síður ótrúlega gaman.

Á laugardagsmorgninum vorum við viðstödd opnun sýningar og götumarkaðar í Le Hutte. Þar klipptu borgarstjórinn og Steinþór sveitarstjóri á borða og svo vorum við leidd um markaðinn þar sem við fengum smakk og gjafir.
Það var óneitanlega afskaplega skrítið að vera í svona V.I.P. hóp þar sem allir vildu allt fyrir mann gera :) Maður gæti nú vanist því! Þaðan lá svo leiðin í hátíðarhádegisverð á glænýju veitingahúsi við höfnina. Þar hittum við Ölmu dúllu sem kom alla leið frá Brussel til að hitta mig :) Veitingahúsið var svo nýtt að hvorki voru vaskar né setur á klósettunum og starfsliðið var engan veginn nógu vel þjálfað til að geta tekið við svona stórum hópi. Þetta borðhald tók 3 og hálfan tíma (eða nokkuð yfir meðtaltali :) ).


Úr hádegisverðinum fórum við svo í hópsiglingu ásamt trillum og smábátum í tugatali, leiðin lá eftir skipaskurðinum út á haf þar sem borgarstjórinn og Steinþór fleyttu kransi í minningu frönsku sjómannanna. Þetta var mjög hátíðleg stund og greinilegt að miklar tilfinningar tengjast þessari sögu í Gravelines. Hetjan mín hann Haddi minn dreif sig í siglingu þrátt fyrir sjóveikina. Það gekk reyndar ágætlega alveg þangað til við vorum komin út á sjó en þá voru öldurnar orðnar heldur miklar og ég sá Hadda greyið fölna og grænka á víxl það sem eftir var ferðarinnar. Hann náði þá að halda hádegismatnum niðri og ég var alveg rosalega stolt af honum :)


Að sjóferð lokinni var svo móttaka á bryggjunni og síðan héldum við heim á hótel til þess að skipta um föt og undirbúa okkur fyrir kvöldverðinn (hádegismatur var búinn 16:30). Kvöldverðurinn var eins og áður alveg svakalega skemmtilegur og við lágum í hláturskrampa allt kvöldið, aðallega á kostnað ungfrú gúrku ;)...blessuð stúlkan æ æ æ! Að kvöldverði loknum kíktum við á sérfranskt harmonikkuball. Maggi fékk helst til mikla athygli hjá bæjarhommanum þegar hann hafði sett stóran silfurhringseyrnalokk í eyrað svo við ákváðum að drífa okkur bara heim á hótel áður en hann færi að gera eitthvað af sér :)

Á sunnudagsmorguninn var farið í kaþólska hátíðarmessu var farið í hátíðarmessu og skrúðgöngu þar sem masserað var um gömlu íbúðarhverfin í Gravelines. Borgarstjórinn og Steinþór lögðu blómsveig á bænastað sjómannskvennanna og Steini hélt óundirbúna ræðu á íslensku. Síðan kallaði borgarstjórinn í mig og bað mig að þýða ræðuna!! Ég var alls ekki undirbúin en reyndi nú samt að æla einhverju svakalega gáfulegu út úr mér án þess að verða mér mikið til skammar.

Að þessu loknu lá leiðin á nokkurs konar þorrablót þeirra Gravelines búa þar sem matur var borinn á borð og ýmis skemmtiatriði sýnd. Toppur skemmtunarinnar var án efa gamall rallhálfur karl sem fór upp á svið og söng fjörug sjóaralög sem greinilega allir hinir 800 gestirnir kunnu. Við gátum ekki annað en hlegið að honum líka þar sem hann söng hástöfum og var við það að missa fölsku tennurnar út úr sér í öðru hverju orði. Aukalega urðum við svo vitni að morðtilraun þar sem geðveik tengadamamma aðstoðarborgarstjórans réðist á hann með risastórum steikarforki sem hún hafði falið innanklæða :)

Að hátíðarhöldum loknum fórum við svo í afslöppun til Dunkirque þar sem við óðum aðeins í sjónum og gengum um ströndina og snæddum að lokum kvöldverð þar sem mikið var drukkið og hlegið að vanda. Eftir kvöldverðinn fórum við svo heim á hótel þar sem við fengum okkur smáöl og kjöftuðum eitthvað fram á nóttina.

Á mánudagsmorguninn héldum við svo af stað í 15 klukkutíma ferðalag heim til Fáskrúðsfjarðar. Þessi ferð var alveg ótrúlega skemmtilegt og það var óneitanlega afskaplega sérstakt að vera Íslendingur í smábæ í Frakklandi þar sem allir vissu hvar Ísland er. Það var líka gaman að heyra íslenska þjóðsönginn spilaðan í skrúðgöngunni og sjá íslenska fánann blakta allsstaðar við hún. Ég mæli hiklaust með þessari hátíð fyrir þá sem vilja upplifa eitthvað sérstakt. Ég var ótrúlega heppin með ferðafélaga og hláturvöðvarnir koma vel þjálfaðir úr ferðinni. Ég hefði kannski viljað eyða aðeins minni tíma í að borða enda held ég að vigtin muni sýna nokkur kg í plús á næstu vikum. Ég verð bara duleg að hreyfa mig í staðinn! Mér dettur ekkert meira í hug í bili :) Sjáumst.

mánudagur, september 19, 2005

Sunnudagaskólakennarinn

Já ég er orðin sunnudagaskólakennari. Það leið þá aldrei haust sem ég kæmi ekkert nálægt skólastarfi :) Ég er semsagt búin að taka að mér að kenna örðu hvoru í sunnudagaskólanum á Fáskrúðsfirði í vetur. Þó ég sé ekki mjög kirkjurækin manneskja þá finnst mér þetta mjög spennandi verkefni. Mér finnst kirkjan gefa svo einsleita mynd af trú og lít á þetta sem mitt tækifæri til þess að innleiða nýja hluti...bylting segi ég bylting!

Nú er að styttast í Frakklandsferðina hjá okkur. Við förum suður annað kvöld og svo út á miðvikudagsmorguninn. Ég er búin að heyra frá svo mörgum að maður lifi eins og kóngafólk þarna úti svo að ég er mjög spennt að fara út og upplifa þetta allt saman sjálf. Haddi er meira að segja orðinn spenntur:)

Á laugardaginn fór ég á námskeið á Eiðum á vegum Þjóðkirkjunnar, námskeiðið var fyrir umsjónarfólk sunnudagaskóla. Mér fannst þetta mjög athyglisvert og eiginlega allt öðru vísi en ég var búin að ímynda mér. Það liggur mikil kennslufræðileg pæling að baki öllu sunnudagaskólastarfi og sunnudagaskólakennarar gera miklu meira en að syngja tikki tikki ta daginn út og daginn inn.

Á laugardagskvöldið fórum við svo í mat til Óðins og Bjargar. Þar fengum við kokteila, rauðvín, bjór, lambalæri og ostaköku. Þetta var alveg frábært kvöld og við kjöftuðum eins og gamlar saumastofukerlingar langt fram á nótt. Það er rosalega gaman að vera að kominn aðeins inn í samfélagið hérna, alltaf gaman að hafa staði til að droppa inn í kaffi :) Svo eru þau líka alveg frábært fólk.

Jæja ég er farin í mat. Læt vita betur af mér þegar ég kem heim úr Frakklandsreisunni.

Hrabbý van der Reiseführer.

mánudagur, september 12, 2005

Gærdagurinn var alveg brilliant! Við hjónakornin skutumst á Norðfjörð í heimsókn til Hrannar og Svenna. Þar fórum við í siglingu í Hellisfjörð og Viðfjörð. Haddi minn hinn sjóveiki varð hins vegar eftir í landi og beið eftir mér á bryggjupollanum eins og Lína forðum. Í mynni Hellisfjarðar afhenti Svenni mér stýrið og sagði að ég mætti sigla inn fjörðinn. Maðurinn var augljóslega með óráði en ég ákvað að notfæra mér aðstöðuna og taka aðeins í græjuna. Ég sigldi náttúrulega eins og sannur atvinnumaður og tókst að halda bæði mér og öðrum í bátnum. Þetta var alveg ótrúlega gaman og litli sjóarinn í hjartanu mínu æpti af fögnuði.
Við fórum svo í land í Hellisfirði þar sem gestgjafarnir slepptu mér lausri til að taka myndir af herlegheitunum, en þar var eitt sinn hvalveiðistöð. Það var mjög sérstakt að koma þangað sem engir vegir liggja og minjarnar um gamla verkhætti eru ennþá mjög augljósar. Ég náttúrulega missti mig algjörlega í myndatökunni og hvarf af og til í grasið þegar ég henti mér á magann til að ná betri myndum. Þau Hrönn og Svenni hafa sjálfsagt haldið að ég væri stórbiluð..ef þau vissu það ekki fyrir þ.e.a.s.. Eftir stutt stopp héldum við svo í Viðfjörð þar sem gestgjafarnir reyndu að hræða úr mér líftóruna með draugasögum, en fjörðurinn er þekktur fyrir alræmdan draugagang. Ég varð nú ekki mikið vör við draugana en verð þó að viðurkenna að ég fékk létta gæsahúð niður hrygginn þegar að við sigldum inn. Það var eitthvað skrítið þarna í loftinu. Þarna út með firðinum standa ennþá reisulegir bæir sem nú eru notaðir sem sumardvalarstaðir. Einhverra hluta vegna mistókust allar myndir sem ég tók í Viðfirði, hvort það voru draugarnir eða eitthvað annað skal ég ekki segja en siglingin var frábær og ég skemmti mér ótrúlega vel. Eftir vel heppnaða ferð fórum við svo heim til Hrannar og Svenna þar sem elduð var ofan í okkur dýrindis máltíð. Að henni og 2 bjórdósum lokinni fórum við svo í Blúskjallaran á tónleika með þeim Sigurði Flosasyni, Pétri Östlund, Eyþóri Gunnarssyni og Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni. Þar spiluðu þeir lög af nýjasta disk sínum "Leiðin heim" sem ég ætla ÞOKKALEGA að kaupa mér við fyrsta tækifæri. Að tónleikum loknum héldum við svo sæl og glöð heim á leið.

Elsku Hrönn og Svenni takk fyrir yndislegan dag. Nú þarf ég bara að finna upp á einhverju skemmtilegu að gera þegar að þið komið til mín!























þriðjudagur, september 06, 2005

Upplýsingamálaráðherra fer til Frakklands

Já það er nú til lítils að vera upplýsingamálaráðherra hjá heilu sveitarfélagi ef maður fær ekki að fara til útlanda. Nú er semsagt að að koma að fyrstu opinberu heimsókn upplýsingamálaráðherrans til Frakklands, nánar tiltekið Gravelines. Þar ætla ég og aðrir opinberir fulltrúar Austurbyggðaramts að taka þátt í Hátíð Íslandssjómannanna sem haldin er á hverju hausti á þessu svæði. Fréttir herma að tekið sé á móti opinberum gestum þar eins og kóngafólki svo ég er að vonum AFSKAPLEGA spennt að fara. Þetta verður örugglega einstök upplifun.

Af öðrum óopinberari málum er svosem ekki mikið að frétta. Við erum að sjálfsögðu að þreifa fyrir okkur í fasteignabraski, bjóða í hús, selja íbúðir og svona. Ekkert komið út úr þeim málum í augnablikinu en fer vonandi að skýrast fljótlega, allavega áður en við lendum á götunni :)

Meira af okkur seinna!
Hæstvirtur upplýsingaráðherra Austurbyggðaramts
Hrafnhildur Mulinex