þriðjudagur, febrúar 28, 2006

OG FRÆGÐARSÓLIN RÍS OG SEST TIL SKIPTIS...EN ALDREI EINS ÞÓ :)

Fyrir þá sem vilja ólmir fylgjast með rísandi frægðarsól minni bendi ég á helgarblað Fréttablaðsins, þar verður umfjöllun um Selasetrið. Já maður slær nú ekki slöku við í pöbbliseringunni..sei sei nei.

Annars er ég búin að vera í mjög heimspekilegum hugleiðingum undan farið. Á heimleið í gær varð mér t.d. starsýnt á sólsetrið, sem var afskaplega fallegt. Þá flugu í gegnum hugann á mér þessi frumsömdu spakmæli:

Gefðu þér tíma til að njóta fegurðar sólsetursins, því það mun aldrei líta eins út og það gerir í dag.

Það var eins og kviknaði á ljósi í höfðinu á mér þegar að ég uppgötvaði þetta, sólsetrið verður ALDREI aftur eins og það var í gær. Já ég er ekki bara ung kona á framabraut, heldur er ég heimspekingur í þokkabót.

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Ég og Bændablaðið!

Ég held að það sé til marks um góða byrjun á framabrautinni að fá birta af sér flennistóra mynd í Bændablaðinu. Rökrétt framhald af því væri líklegast stjarna á Holliwood Boulivard. Þar stæði:

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Star in the Farmerspaper
Iceland

Áður en ég veit af verð ég farin að chilla í V.I.P. herbergjum á Chelsea leik með Dóra Ásgríms og Leon C. Þar höldumst við í hendur og syngjum um ástina á pöbbnum á milli þess sem ég stend upp og sýni þeim Bændablaðspósuna aftur og aftur. Þetta verður algjör draumur í dós.

Hrabbý van der Farmerspaper

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Like a seal baby!

Já ég er eins og selur, tignarleg í vatni en þunglamalega brussuleg á landi. Þetta er niðurstaða mín eftir að hafa farið í sund í gær og synt 1 km. Það þýðir 20 ferðir fram og til baka og 40 snúninga. Ég er reyndar ekki mjög lipur í þeim ennþá en það hlýtur að koma. Ég hef allavega fulla trú á að ég sé hávaxin og tignarleg í lauginni þegar ég klýf öldurnar eins og spikaður vorselskópur :D Ef þið eigið erfitt með að trúa þessu ... come and see for yourself baby :D

Kvisss...bamm...búmmm
Hrabbý

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Sólin og jörðin og fuglarnir með...

Í gærkvöldi ákvað ég að drífa mig í sund fyrir vinnu í morgnana, svona sundátak. Kl. 7 hringdi klukkan og ég lét rifa í hægra augað, hlustaði á vindinn, ímyndaði mér kuldann, stillti klukkuna á hálf 8 og hélt áfram að sofa. Kl. hálf 8 lét ég rifa í vinstra augað, heyrði hvolpinn væla, hleypti hundunum út, skreið svo upp í aftur og stillti klukkuna á 8. Kl. 8.15 tókst mér að opna bæði augun 75%, drattaðist fram úr, fékk mér Cherios með piparmyntumjólk (don´t ask), horfði buguð á íþróttatöskuna, ákvað að taka hana með mér. Hávaðarok feykti mér inn í bíl (svona notið ímyndunaraflið)og ég notaði aksturinn til að íhuga stöðuna. Niðurstaðan var sú að synda eftir vinnu fyrst um sinn því að ég er álíka mikil morgunmanneskja og Bob Dylan. Um leið og fer að birta meira ætla ég mér samt að fara fyrir vinnu. Við sjáum hvernig gengur.

föstudagur, febrúar 10, 2006

Júróvisjón undankeppni dauðans!

Hvað er málið með Júrovísjon í ár. Ég er algjör júróvisjónidíót en ég hef nú sjaldan séð annað eins samansafn af lélegum lögum. Af hátt í 30 lögum eru bara 5 sem mér finnst vera frambærileg, af þessum 5 eru bara 3 sem ég gæti séð fyrir mér í aðalkeppninni, 2 þeirra gætu hugsanlega náð í úrslitakeppnina. Ef þessi lög voru 24 bestu lögin af þeim rúmlega 200 sem voru send inn í keppnina þá er ég aaaafskaplega fegin því að þurfa ekki að heyra restina.

Fyrsta undanúrslitakvöldið slapp nú svona nokkurn vegin til. Annað úrslitakvöldið átti ég bara hreint út sagt ekki orð yfir þessu rugl.Ég varð allavega bara óóóóó ó svo hamingjusöhöm ... þegar að þátturinn var búinn og tónheyrnarhryðjuverkunum linnti. Þriðja og síðasta úrslitakvöldið byrjaði með einhverju sem ég vill gleyma sem fyrst og grafa í undirmeðvitundinni..skagfirskri sveiflu með rappkafla...HALLÓÓÓ!!! Þátturinn leið svo í tiltölulega hlutlausum gír þangað til í síðasta laginu en þá sat ég eins og niðurnegld í stólnum og gat mig hvergi hrært, á meðan eyrunum á mér var miskunarlaust misþyrmt af wannabe rokkurum með upplitaðar, gamlar rollur á höfðinu. Ég veit að þetta átti að vera eitthvað djók hjá þeim en það missti algjörlega marks hjá mér allavega. Hvað er að Íslandi í dag?? Hér erum við, heimsfræg fyrir frumlega séríslenska tónlist, og það var ekki EITT FOKKINGS frumlegt lag í þessari undankeppni. Þau lög sem komu næst því að kallast "frumleg", "ethnik" eða eitthvað spes yfir höfuð voru lögin sem Dísella og Regína sungu. Ég held með Regínu enda voru tónarnir sem hún gaf frá sér lamandi (in a good way :) ). Silvía Nótt var svo heill kapítuli út af fyrir sig :) Mér fannst hún bara mjög skemmtileg og lagið ágætt. Held samt að Evrópa hafi kannski ekki alveg húmor fyrir þessu þó svo að Íslendingar hafi það.

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Komin heim í heiðardalinn :)

Nú erum við nánast búin að koma okkur fyrir á nýjum stað...enn og aftur :) Þetta fer nú að komast upp í vana. Ef ég gæti fundið upp á leið til þess að nýta svona pökkunartækni til fjár er alveg spurning hvort ég myndi ekki beina framabrautinni í þá áttina. Reyndar gerði ég nú mest lítið í þetta skiptið, Haddi sá eiginlega um þetta allt því ég var svo "upptekin"..hehehmmm. Já það er ekki auðvelt að vera svona eftirsóttur það get ég sagt ykkur :D.

Líkt og á ýmsum fleiri vinnustöðum er skrifstofan mín langt frá því að vera tilbúin og því víst að ég mun ekki vinna í hinu eiginlega Selasetri fyrr en eftir 2 vikur í fyrsta lagi. Þangað til fæ ég að nýta mér tómt skrifborð hjá ferðamálafulltrúanum og byrja þar á morgun. Síðustu daga hef ég verið að vinna frá Dæli eftir bestu getu en hef fulla trú á að ég eigi eftir að ná þessu öllu saman á fullt swing í næstu viku. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og hugsa stórt...það er allavega mottóið hér í Húnaþingi vestra þessa dagana. Gaman að sjá hvað það er mikið um að vera hérna og mikil framkvæmdagleði í fólki. Ég held að önnur sveitarfélög gætu tekið kraftinn í þessu fólki sér til fyrirmyndar, því ekki hefur það fengið stóriðju eða annað til þess að rífa samfélagið upp. Hér verður fólk bara að bjarga sér sjálft, það er sko engin "elsku Valgerður" hér á ferðinni...ó sei sei nei. Mér finnst þetta svæði bara ágætis dæmi um það að stóriðja er ekki alltaf lausnin, þó hún geti verið afskaplega gagnleg á sumum stöðum.

Mér þykir þetta blogg farið að verða full pólitískt! En það er kannski ágætis stefna þar sem forstöðumenn menningarstofnanna eiga að hafa skoðanir á hinum ýmsu hlutum og láta í sér heyra. Ég verð að æfa mig á blogginu, taka svona generalprufu á ykkur elskurnar :)

Ciao í bili
Hrabbý