föstudagur, febrúar 25, 2005

Komst á leiðarenda að lokum...

Jæja þá er ég komin á Fáskrúðsfjörð eftir alveg ótrúleg ævintýri við að reyna að komast þangað. Samkvæmt áætlun átti flutningabíllinn að fara úr bænum um hádegi á miðvikudag og við ætluðum að gist á Akureyri á miðvikudagsnóttina. Um hádegi kom í ljós að flutningabíllinn var bilaður svo að hann þurfti að fara inn á verkstæði, þaðan var honum svo bakkað út um þrjú leytið. Þá lá leiðin í Rúmfatalagerinn til að ná í nýja sófann, hillusamstæðuna og borðstofuborðið sem að hann Blíðlyndur minn verslaði í stórborginni. Þegar að Haddi opnaði pallinn kom í ljós að á honum var þegar 1/3 af plássinu upptekinn og Hadda féllust hendur þegar að hann sá fram á að búslóðin okkar myndi ekki komast með góðu móti fyrir í bílnum. Bílstjórinn fullyrti samt að þetta myndi hafast á endanum. Við vorum nú þegar orðin 4 tímum á eftir áætlun en bílstjórinn var nú ekkert að flýta sér því að hann fór í 2 tíma rúnttúr um bæinn til að hirða upp hina ýmsu pakka og skellti sér svo heim í sturtu og kaffisopa áður en hann lagði í hann. Þá var Haddi farinn að rífa ansi hressilega í hárið á sér (sem er nú stutt fyrir) og var nú bara alls ekkert blíðlyndur lengur ó nei nei. Hann hringdi í mig og tilkynnti mér að meðan að karlinn væri í sturtu ætlaði hann sko út í sjoppu að kaupa sér kók og e-pillu!! :) Um sjö var bílstjórinn svo loksins búinn að sjæna sig og þeir gátu haldið úr bænum. Ferðin tók þá félaga fjóran og hálfan klukkutíma og á hálftímafresti fékk ég sms frá Hadda þar sem að blótsyrðunum fjölgaði til muna við hverja sendingu. Hann var nánast sannfærður um að þegar hann loksins kæmist á staðinn væri ekki nóg með að hann væri dauður úr leiðindum heldur myndi dótið líklegast ekki komast fyrir í bílnum!! Ég sá fram á að þurfa að grípa til róttækra ráðstafanna svo að ég kallaði út hann karl föður minn sem hefur það að einkunnarorðum að það komist allt fyrir allsstaðar...það þurfi bara að raða! Það var greinilegt að það var þörf á hans snilligáfu til þess að dæmið gengi upp. Rétt fyrir miðnætti byrjuðum við að raða á bílinn og því lauk ekki fyrr en um hálf fjögur um nóttina. Þá var pabbi búin að tetrisa sig í gegnum búslóðina og síðasta stykkið rétt small inn á pallinn áður en að lokað var. Ég held að ég eigi eftir að vera pabba að eilífu þakklát fyrir að bjarga búslóðarflutningunum og ekki síst geðheilsu Hadda!! Við þurftum svo að skúra okkur út og lögðum af stað til Akureyrar rétt fyrir fjögur. Við vorum komin þangað um hálf 6 leytið og settumst þá inn í eldhús hjá Auði ömmu hans Hadda og fengum okkur mjólk og brauðsneið áður en að við lögðum okkur aðeins. Klukkan 9.30 vorum við komin á fætur og lögðum af stað austur rétt rúmlega 11.

Ferðin austur gekk svo ágætlega og ég var mætt á fund í ráðhúsinu á Fáskrúðsfirði kl. 16.00 í gær.

Flutningabíllinn var svo mættur á staðinn um 21.00 og með góðri hjálp úrvalsliðs heimamanna vorum við ekki nema klukktíma að afferma bílinn. Síðan settum við saman rúmið okkar og fórum að sofa...sem var reyndar svolítið erfitt því að tempurdýnan reyndist næstum frosin og rúmið virkaði eins og steinsteypuklumpur! Við vorum hins vegar svo þreytt að við sofnuðum um leið og við lögðumst á koddann.

Í dag mætti ég svo í nýju vinnuna kl. 8.00 (dugleg). Mér líst bara mjög vel á þetta og er viss um að um leið og ég hef endurheimt líkamsklukkuna mína eigi þetta eftir að verða frábært!!

Over and out
Hrabbý

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Allra allra síðasti dagurinn...
Í dag var semsagt allra allra allra síðasti dagurinn minn í Víðidalnum í langan tíma (ég veit að ég hef sagt þetta áður ;-) ) Daginn notaði ég til þess að heimsækja vini mína á Bakka og eiga góða kvöldstund með foreldrum mínum. Á morgun tekur svo við flutningabrjálæðið mikla. Ég er eiginlega orðin fyrirfram þreytt því að við eigum óendanlega mikið af kössum og dóti, samt finnst mér við aldrei eiga neitt. Nei nei þessu verður bara ruslað af að gömlum sveitakarla sið og svo verður haldið af stað í ævintýrið mikla. Ég er orðin mjög spennt...og eiginlega svolítið stressuð líka, ég hef allavega tekið eftir því að neglurnar á mér styttast óðfluga þessa dagana. Ég reyni nú samt að halda því fram að þær séu í hungurverkfalli vegna sífelldra flutninga en ég held að það trúi mér ekkert afskaplega margir ;-)

Haddi minn fór til Reykjavíkur í gær til þess að mæta í allskonar myndatökur út af hnénu á sér í dag. Hann notaði tækifærið þegar að hann var laus við kerlinguna og fór í húsgagnaverslunarleiðangur þar sem að hann keypti m.a. sófa. SKO MINN!! Ég þarf greinilega að senda hann oftar í bæinn að versla, við getum aldrei ákveðið neitt þegar að við förum saman. Ég reyni náttúrulega alltaf að ráðskast með allt en hann hleypir mér nú ekkert með það...fer þetta bara á rólegheitunum þessi elska..hann blíðlyndur minn heheheh :-)

Hann Alexander okkar var lagður inn á sjúkrahús á laugardaginn eftir að hafa fengið flog heima hjá Lillu og Mumma. Þegar að hann koma á spítalann kom í ljós að hann var með lungnabólgu og hann var strax lagður inn. Haddi fór að heimsækja hann á spítalann í dag. Hann var voðalega glaður að hitta Hadda frænda og "talaði" meira að segja við Hrabbý gömlu frænku í símann. Það er alveg ótrúlega sterkt í þessum kraftaverkadreng. Hann mætir sínum veikindum alltaf með glensi og gríni og bræðir alla með brosinu sínu. Fallegasta barn í heimi drengurinn sá. Þið megið gjarnan minnast hans í bænum ykkar (ef þið biðjið svoleiðis), honum og Auði veitir ekki af öllum þeim styrk sem þau geta fengið.

Jæja nú er ég orðin væmin enda klukkan löngu orðin háttatími!

Ég leyfi ykkur að fylgjast með hvernig austurferðin gekk (HEY! ég er að fara í vitlausa átt...er ekki svaaakalega mikið inn að vera Vesturfari?????nei bara pæling)

gute nacht
Hrabbý van der flytja mikið

mánudagur, febrúar 21, 2005

Dagur í leikskólanum!

Eftir hádegi í dag var ég að hjálpa mömmu í leikskólanum. Ég er búin að öpdeita orðaforðann fyrir 5 ára og yngri; ídda, hidda, attu, úi, heylðu, banna, íóú, off, habbý, siglún, dlekka....ég er tilbúin að verða foreldri........bring it on!!!!!!!

Ég þoli ekki að pakka!!!
Síðustu daga erum við búin að vera að pakka og þrífa og pakka og þrífa...þetta eru leiðinlegustu hlutir í heimi held ég bara. Við eigum alveg óendanlega mikið af drasli og dóti sem við notum aldrei en tímum ekki að henda. Við vorum nú samt fljótari að pakka núna en í haust...kannski vegna þess að við tókum aldrei almennilega upp úr kössum ;) Flutningabíllinn kemur svo á miðvikudaginn. Við vorum búin að reikna með að komast alla leið þá EN!! NEI NEI...flutningabílstjórinn segist ekki keyra lengra en til Akureyrar á miðvikudeginum...við fáum því ekki draslið okkar fyrr en á fimmtudaginn og ég á að mæta á vinnufund á fimmtudagskvöldið. Við verðum því annað hvort að keyra bara eins langt og við nennum á fimmtudagskvöldið og kaupa okkur svefnpokapláss, eða keyra alla leið austur og sofa á tjalddýnum með svefnpoka fyrstu nóttina. Við erum eiginlega alveg komin á það að kaupa okkur bara svefnpokapláss og sofa í almennilegu rúmi. Nóg er nú stressið og lætin fyrir þó að maður fari ekki að sofa á gólfinu líka!! Ég vona bara heitt og innilega að allt annað gangi eins og smurt. Veðurspáin er allavega góð svo að við ættum ekki að lenda í neinu veseni á leiðinni. Svo verður lífið vonandi farið að ganga sinn vanagang í næstu viku.

Ég er að fara í brúðkaupsátak!! Ég sá á myndum að það er alveg svakalega fín rækt þarna fyrir austan svo að ég ætla að fara í eitt allsherjar brúðkaupsátak. Takmarkið er að missa 20 kg!! Ég ætla að láta það takast! :) Hef líka aldrei verið svona vel stemmd í átak..get ekki beðið eftir að byrja.

Ég er stödd upp í skóla núna til þess að ganga frá síðustu hlutunum og kveðja samstarfsfólkið. Mjög skrítið að vera komin hingað aftur eftir rúma viku í burtu.

Sjámst
Hrabbý

föstudagur, febrúar 18, 2005

Dagur í Dæli!

Í dag erum við búin að vera í Dæli að njóta sveitarinnar áður en að við ruslumst austur á land. Víðidalur skartaði sínu fegursta í dag í glampandi sólskini og yndislegu veðri. Mamma dró mig út í göngutúr með sér alla leið út á Litlu-Ásgeirsá þar sem við skiptumst á kjaftasögum við Villu yfir kaffibolla og Siríus súkkulaði. Mikið ofboðslega á ég eftir að sakna sveitarinnar minnar og fólksins míns. Við höfum alltaf verið í seilingarfjarlægð frá þeim en núna verður nú ekkert skrepp lengur í Dæli. Það eru hvorki meira né minna en ca. 550 km þaðan og á Fáskrúðsfjörð! Við höldum samt að þessi breyting eigi eftir að hafa góð áhrif á félagslífið hjá okkur þar sem við gerum aldrei neitt nema að fara í Dæli um helgar. Það er rooosalega gott að geta komið til mömmu og pabba og slappað af, hefur sko alveg bjargað geðheilsunni hjá mér í vetur. Við erum nú samt farin að örvænta aðeins í sjónvarpsmálum þar sem að það er ENGINN SKJÁR EINN á Fáskrúðsfirði!! Úff...það verður erfitt fyrir Survivornöllana Hrabbý og Hadda..svo að ég tali nú ekki um CSI!! Við erum farin að velta því alvarlega fyrir okkur að fá okkur bara stöð 2 ... yfirdráttur er yndislegt fyrirbæri :) ......heheheh.

Adios

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

Ennþá í bænum!

Já já við ætluðum að bruna norður í dag til þess að klára að pakka. Þá varð veðrið auðvitað vitlaust, Holtavörðuheiðin nær ófær og við ennþá í Reykjavík. Það er svo sem ekki alslæmt þar sem að hún Elfa mín var að eignast stóran og stæðilegan strák í gær sem að ég get kíkt á á morgun áður en við rennum úr bænum.

Ég fór í Hagkaup í dag til þess að kaupa mér föt. Ég fann EINAR buxur sem pössuðu bæði í lengd og breidd. Fullt af buxum fyrir konur sem greinilega eru með lappir upp í háls, þ.e. náðu mér meter framfyrir tær svo að hnén námu við ökkla. Ég er greinilega með afbrigðum lappastutt af Íslendingi að vera. Ég hef reyndar alltaf haldið því fram að ég sé með eindæmum leggjalöng og tignarleg...ég þarf nú kannski að fara að endurmeta þá skoðun mína aðeins! Ég ætti kannski að hætta að miða mig konur af kynþætti Hottintotta í Kongó (þær eru að meðaltali 130 cm að hæð)! Mér hefur bara alltaf verið sagt að ég eigi að horfast í augu við lífið á mínum forsendum...mínar forsendur eru bara greinilega laaaaaaaangt fyrir neðan eðlilega meðalhæð. Ég bæti þetta þó allt upp með breiddinni enda úr Kópavoginum upprunalega.

Ciao

mánudagur, febrúar 14, 2005

Jæja!

Nú erum við skötuhjúin stödd í borginni í síðasta stoppi áður en við flytjumst búferlum austur á Fáskrúðsfjörð. Við erum bæði rosalega spennt fyrir því að fara og getum ekki beðið eftir því að takast á við ný og spennandi verkefni. Við erum jafnvel svo spennt að við ýtum peningaáhyggjum og stressköstum til hliðar og reynum að njóta lífsins eins og við getum.

Furðulegt hvað peningarnir virðast gufa upp þegar að maður kemur til borgarinnar. Það liggur við að maður geti bara sturtað öllum kortunum úr peningaveskinu á fyrstu rauðu ljósnum....hehe. Kannski er ég bara svona mikill eyðsluseggur hver veit? Við getum allavega sagt að næsta Eurocardreiknings verði ekki beðið með mikilli óþreyju ;) Annars er ég nú komin á þá skoðun að maður geti ekki verið alvöru Íslendingur nema að draga á eftir sér allavega 10 milljóna króna skuldahala :) Ég er sko gleeeeeeeerekta ;) Talandi um peningaútlát!!! Brúðkaupsundirbúningur gengur ágætlega. Við erum loksins búin að senda flest öll boðskortin út og svörin eru farin að streyma inn. Við sáum fljótlega að við myndum sprengja það gistipláss sem við höfðum tekið frá í Dæli svo að við hringdum í mömmu og báðum hana að taka frá restina af plássinu! Þetta er orðið svo mikið af fólki að manni hálfpartinn svimar við tilhugsunina ;) Við höldum samt að þetta eigi eftir að verða alveg ótrúlega skemmtileg helgi og hlökkum alveg roooosalega til!

Minnum alla á að hafa samband sem fyrst og láta okkur vita um gistingu :)

Bless í bili - Hrabbý skabbý og Hraðlatur