Norah Jones beibí!
Ég er að fara á Norah Jones tónleika á sunnudagskvöldið. Hlakka alveg svakalega til. Svo tekur við fundalota í Keflavík fram á fimmtudag, það verður ágætt að hlaða batteríin aðeins á undan.
Nú er ég komin á 28. viku og meðgangan hefur gengið bara ljómandi vel. Engar alvarlegar aukaverkanir ennþá. Bakið og grindin eitthvað að gera mér lífið leitt en það er nú bara partur af prógraminu. Það er samt hálf óhugnanlegt hvað það styttist í krílið. Var síðast að hugsa í gær hvort að ég væri tilbúin til að verða mamma :) hahahhahah ..hemmm.
Það er búið að steypa uppistöðurnar á húsinu okkar! JEI!!! Nú á bara eftir að steypa plötuna, það verður vonandi gert fyrir stóðréttir. Stefnan er að flytja inn í vor, reynum ekki að gera okkur vonir fyrr, enda engin ástæða til að stressa sig úr hófi með þetta allt saman.
Að lokum þá urðum við að taka mynd af þessum snilldarbíl sem var á hlaðinu í Dæli um daginn. Á hurðinni stendur "The Russian Hummer". Í ljós kom að þetta er bílaleigubíll sem saklausir túristar leigðu til hringferðar um landið....ahhahahahhah :) góð kaup það.
