Jellú! :)
Ég er komin aftur a.k.a. Bumbulína Mulinex mætt á svæðið. Við Haddi erum búin að finna lífsfyllinguna...Eldsmiðjupizzur. Við fórum í frí suður í 4 daga í síðustu viku og urðum ástfangin. Já! Hlutirnir eru sko ekki lengi að gerast hjá fólki með stórt hjarta.
Við Sandra gæsuðum Margréti vinkonu á fimmtudaginn. Buðum henni fyrst í meðgöngunudd, klæddum hana svo upp í aaaaaaaagaleg fínt dress og fórum með hana á kaffihús. Til þess að gera ekki útaf við hana fengum við efstu hæðinu á Barnum - fyrrum 22 - alveg fyrir okkur. Þar var stelpan vopnuð smokkum og sleipiefni sem hún átti síðan að dreifa (kasólétt), en það gekk nú eitthvað illa að koma þeim út :). Af kaffihúsinu tókum við rúnt um bæinn og fórum svo á Madonnu að borða ... mmmmm. Þar vakti Margrét óskipta athygli, einna helst fyrir það að hún var að líða út af vegna hita og leit út fyrir að vera með flatlús í hárkollunni (hún klóraði sér svo mikið).
Brúðkaupið var svo á laugardaginn. Þar var Mrs. B. Mulinex veislustjóri og stjórnaði lýðnum með harðri hendi. Gaman að hafa svona vald yfir fólki. Ég lét náttúrulega alla rífa sig úr og dansa kan kan allsbera. Lét ótrúlega vel að stjórn þessi hópur :)

1 Comments:
Ekki að ástæðulausu að ég bý 10 metra frá Eldsmiðjunni. Var einmitt að borða eina slíka í kvöldmat.
Þú hlýtur að vera orðin ansi myndarleg, láttu kallinn dekra við þig, mæli með kókómjólk og Balancid Novum.
Kveðja
Guðrún Laufey
Skrifa ummæli
<< Home