Pólitík
Það hefur ekki farið framhjá neinum að alþingiskosningar eru á næsta leiti. Það er sama hvaða útvarpsstöð maður reynir í sakleysi sínu að hlusta á, allsstaðar eru pólitíkusar að ræða helstu baráttumálin. Leiðinlegast finnst mér að hlusta á fólk sem virðist ekki geta komið frá sér setningu án þess að troða orðum eins og „hérna" og „sko“á milli annars hvers orðs, og svo þeir sem að eru húkked á aukahljóðunum „ehhhhh...ahhhhh...ööööööö". Er ekki lágmark að fólk geti talað sómasamlega án þess að gera mann geðveikan? Það getur vel verið að þetta fólk hafi margt fram að færa, en eftir 27. hérnað og 41. öööööið þá er athyglin mín bara fokin og það eina sem ég get hugsað um er hversu afskaplega þetta fer í taugarnar á mér. Getið þið ímyndað ykkur að sitja á alþingisfundi með svona ræðumanni? Ræða sem vanalega tæki 10 mínútur væri orðnar 45 mínútur vegna aukahljóða. Mikið er ég fegin að vera ekki alþingismaður.

6 Comments:
Alveg sammála þér. Hef líka tekið eftir þessu hjá útvarpsfólki. Þess vegna er best að hlusta og horfa á fréttir á rúv held ég, þar er fólk amk vel að máli farið.
Veit að ég þarf sjálf að læra að tala almennilega íslensku, finn að ég er ekki að umgangast eldra fólk nógu mikið til að tala og læra almennilega íslensku. Er með of mikið af börnum og unglingum í kringum mig. Ætti kannski að minnka aðeins enskuna líka í kringum mig.
Smá vangaveltur.
Þú ert bara ekki að hlusta á réttu stöðvarnar ef þú ert með pólitískt blaður í eyrunum alla daga! Á fm957 í gær var til dæmis verið að tala um kynlíf, hefði haldið að þér þætti það mun skemmtilegra útvarpsefni en pólitík :p
Eg heyrdi einu sinni talad um kinnlif. Veit ekki alveg hvort thad er thad sama. Hrabby getur thu fraett okkur???
Hva ekkert að gerast hér? Þú getur nú updateað stjórnmálaskrifin þín amk
Það er gott ráð að sjá upptöku af sjálfum sér því maður gerir sér ekki grein fyrir þessum aukahljóðum. Man í kennslufræðinni þegar var tekin upp ein kennsla, fattaði alls konar ósiði þar eins og stanslaust ,,sko" sem ég sagði í tíma og ótíma og geri því miður enn.
Þessi nafnlausa hér að ofan er Guðrún Laufey, soorý
E.S. ógeðslega erfiðir stafirnir hérna fyrir neðan
Skrifa ummæli
<< Home