föstudagur, desember 22, 2006

Allt á floti!

Eftir miklar leysingar ruddi Hvammsáin sig með látum og ósinn stíflaðist, með þeim afleiðingum að kjallarinn á vinnustaðnum fylltist að vatni. FRÁBÆRT!!! Hver vill ekki smá rakaskemmdir fyrir jólin. Massívir gaurar með sverar dælur komu á staðinn og hófust handa við að dæla vatninu út aftur. Mér fannst það algjör vitleysa, því kjallari fullur af vatni hefur náttúrulega svo fjölbreytt notagildi fyrir fyrirtæki eins og þetta. Ég hefði viljað þétta veggina til að halda vatninu inni. Síðan hefði ég sleppt svona 3 - 4 selum í kjallarann og rukkað massa fúlgur fyrir að leyfa fólki að skoða herlegheitin. Synt með selum...hljómar það ekki nostalgíulega? Ég gæti líka sett af stað íslenskan Survivor með því að setja fiska, seli og 3 manneskjur niður í kjallara og læsa. Eftir 2 vikur myndi ég svo opna aftur og sjá hvaða skepnur væru á lífi. Möguleikarnir eru svo margir þegar að maður er snillingur..................

1 Comments:

At 12:37 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já bömmer maður að dæla vatninu út, þetta var nebbla bráð snjöll hugmynd hjá þér með selina sko hehe:)

 

Skrifa ummæli

<< Home