
Var að lesa bloggið hans Svenna míns sem var eitthvað svo stjarnfræðilega jákvætt og hvetjandi. Fékk mig til að vilja leggja mitt af mörkum til alheimsfriðar og verndurnar naggrísa í Skotlandi. Já, hann Svenni minn dregur svo sannarlega fram það besta í fólki.
Ég fylltist allt í einu þörf til að rífa mig úr fötunum og synda nakin með æðarkollunum í höfninni, láta mig fljóta á bakinu og velta fyrir mér tilgangi lífsins. Kannski hefðu æðarkollurnar eitthvað til málanna að leggja, maður veit ekki. Þær eru allavega á því að höfnin sé heitasti hang out staðurinn í bænum, synda þar um og úa daginn út og inn. Ef ég væri þarna allsber líka yrði þetta líklegast heitasti túrístastaðurinn á Norðurlandi The Weird Naked Eider Duck Lady in Hvammstangi harbor. Hvað segið þið um það? Mynduð þið koma og kíkja á mig? Kannski henda krökkunum út í og taka myndir af þeim sitjandi á belgnum á mér?

2 Comments:
Hrafnhildur eg get nu sagt ther ad mer tokst ekki ad draga thad besta fram i systir minni thegar eg gaf henni sturtuhaus. En thad er gott ad geta glatt thig og eg er ekki fra thvi ad thessi poddulegu krakkar minir myndu synda med ther i hofninni. Myndi samt ekki leyfa theim ad sitja a maganum a ther. Thu manst thad ad nudlan min skeit einu sinni i sundlaug thannig ad thad er aldrei ad vita hvad hun myndi gera vid thig.
Engin spurning, meira segja myndi ég sitja á belgnum og láta taka mynd af mér :)
Skrifa ummæli
<< Home