Karlmenn og brjóst!
Kæru vinir..hvað er þetta með karlmenn og brjóst? Ég spyr nú bara svona eins og hálfviti! Ég er búin að fara á 2 þorrablót núna undanfarið, slysaðist til að fara í frekar flegnum topp með þeim afleiðingum að það varð afskaplega erfitt að veiða andlitin á karlkyns samferðamönnum upp úr hálsmálinu hjá mér. Hey! Hérna uppi vinur! Hvað er málið? Ég vil biðja karlkyns lesendur þessa bloggs vinsamlegast að skilja eftir komment með ítarlegum útskýringum í fjórum liðum á þessu brjóstafetisi karlmanna. Þetta fer að verða spurning um að kaupa rúllukragabol ;)

4 Comments:
Felginn bolur ja. Er thad svona bolur sem thu ert buinn ad fla af annarri konu??
Brjost eru ofmetin og eiginlega bara leidinleg.
Gerir rullukragabolur mann flatbrjosta?
Brjost og karlmenn eru svona eins og strumparnir og Kjartan galdrakall.
Thetta eru 4 atridi fra karlmanni eda thannig.
Ég hef átt við þennan vanda að stríða í mörg ár. Var orðin svo þreytt að ég keypti mér rúllukragabol.
Fór á Hjónaball Gaulverja (þorrablót) um daginn í nýja kjólnum mínum. Hann er með stórum og miklum kraga. Félagi minn og vinur sem er ávalt með mér á þessu blóti kvartaði. Hann kvartaði. Ég skil þetta ekki.
Brjóstmiklar konur eiga ekki að vera í rúllukraga því það eykur bara á flatarmálið. Þær eiga að vera í bolum með síðu hálsmáli, v-máli, u-máli, kassa-máli eftir því hvernig andlitsfall þeirra er.
(Ráð úr litgreiningabókinni góðu sem Heiðar snyrtir studdist við hér á árum áður).
Ég gæti ekki verið meira sammála þér!
Ég lít nú brjóstin mín allt öðrum augum eftir að ég er farin að flaksa þeim í tíma og ótíma hvar sem er, hvenær sem er og fyrir framan hvern sem er. Á meðan maður er með barn á brjósti verða þau bara eins og hendurnar á manni og öllum til sýnis og manni er alveg sama, stórmerkilegur andskoti alveg hreint.
Guðrún Laufey
Skrifa ummæli
<< Home