Veröldin og ég..
Já aðalfrétt dagsins hlýtur að vera sú að Ástralir "rassskelltu" Englendinga 5:0 í krikket. Ég get eiginlega ekki ímyndað mér að neinum hafi tekist að byggja upp tilhlökkun og spennu fyrir neinn annan atburð en akkúrat þennan. Ég sjálf gat ekki beðið eftir að jólin væru búin svo að ég gæti einbeitt mér að þessum stórviðburði. Dagarnir á undan fóru í undirbúning. Þegar ég kom heim á mánudaginn fór ég strax að poppa í dollur og frysta svo að ég þyrfti ekki að gera það á keppnisdaginn. Ég keypti líka hóstamixtúru og reyndi að kolsýra hana með því að blása stanslaust í hana í 12 tíma, það gekk ágætlega og nú bíður "kókið" inni í ísskáp. Fánar, búningar og veifur voru afgreidd á miðvikudaginn og sófinn betrekkaður með ástralska fánanum í gær. Í nótt sofnaði ég með andlitsmálinguna á mér...horfði á leikinn í morgun, kláraði kippu á meðan. Er núna í vinnunni og reyni að skilja tilganginn í því að búa í krikketlausu landi...

2 Comments:
doj!!!!!
jæja góða, mín síða er
www.sessya.bloggari.is
Skrifa ummæli
<< Home