þriðjudagur, janúar 30, 2007

Bjargvættur Íslands og sela við norðurheimskautið!

Vísindamaðurinn ég hefur fundið leið til að reisa íslenskan sjávarútveg við og um leið bjarga selum við norðurheimskautið úr útrýmingarhættu. Hvernig? Já það er von að þið spyrjið. Svarið er auðvitað Angóruþroskaeldi!!! Hvernig engum hefur dottið þetta í hug áður er algjörlega ofar mínum skilningi. Það eina sem við þurfum til að þetta gangi er karlkyns angórukanína, þorskur og helst svolítið vafasamur kóreskur líftæknivísindamaður.

Þorskurinn verður svo ræktaður í kvíum, rúinn af og til fram til 5 ára aldurs, en þá verður honum slátrað. Sláturafurðirnar eru þá fyrirtaks fiskur á diskinn..og loðfeldur sem hægt er að láta inúíta á norðurslóðum fá í klæði. Þar með björgum við selastofnum við norðurheimskautið! Matarmissinn bætum við inúitunum svo upp með því að senda þeim harðfisk og skreið.

Ég er snillingur :)

1 Comments:

At 12:54 f.h., Blogger Hallfríður Ósk said...

Hmmmmmm hvað eru angóruÞROSKAR og hvað eiga þeir skylt við ÞORSKA??

 

Skrifa ummæli

<< Home