mánudagur, júní 18, 2007

Heyrðu nú mig fröken theddag!

Ég er sko ekkert lögst í dvala aftur. Ég er bara stórgrosser þessa dagana þar sem ég er bæði framkvæmdastjóri og ferðaþjónustubóndi. Það verður nú eitthvað undan að láta þegar að ekki eru nógu margir klukkutímar í sólarhringnum!! (og skammastu þín svoooooo..hvað er að þér nú..hei!)

Ég er dottin í eitís tímabilið aftur. Haddi gaf mér íslenska eitís safndiskinn og nú blasta ég hann í bílnum út og suður. Þetta er þvílík snilldar tónlist, algjörar perlur þarna inn á milli. Svo náttúrulega aðrar sem maður kannast ekki alveg við að hafa heyrt áður, en það er önnur saga. Mér finnst t.d. ótrúlega fyndið að hafa Geirmund Valtýsson á þessum safndiskum :)...ég meina er hann eitís????? Jú permanentið gerir hann kannski gildan í eitís hópinn :)

Haddi minn var ofsóttur af nöktu kvenfólki í gær. Ég er farin að halda að kvenfólkið í Dæli sé búið að leggja á ráðin með að tæla hann frá mér. Hann er allavega búinn að sjá mun fleiri brjóst, bæði sænsk og íslensk, á þessum bæ en bæði ég og hann kærum okkur um (allavega ég!!).

Heyriði..ég verð veislustjóri í brúðkaupi í ágúst og vantar góð ráð. Endilega sendið mér línu um eitthvað skemmtilegt á hrabbygella@hotmail.com.

Hættu svo að röfla theddag :)

föstudagur, júní 08, 2007

Er kerlingin ekki bara að blogga!!!

Já það kom að því! Ég er komin úr dvala, eða réttara sagt stresskasti vegna vinnunnar. Okkur tókst að opna á tíma á Sjómannadaginn, sýningin flott og allir ánægðir. Nú get ég semsagt farið að slaka aðeins á og einbeita mér að því að vera bumbulína (vex alltof hægt þessi bumba).

Ég og huldumaðurinn erum að fara í sumarbústað með Döggu og Óla um helgina. Það verður frábært að komast aðeins í burtu, flatmaga í heita pottinum og borða á sig gat. Í næstu viku fara mamma og pabbi svo út í lönd og við Haddi gerumst ferðaþjónustubændur í Dæli á meðan.

Svenni (The Scotish King of Sjæt) kvartaði yfir því á sínu bloggi að ég þættist vera einhver söngdrottning en hann hefði nú samt aldrei heyrt mig syngja. Hvar hefur þú verið Sveinn??? Ég hef sungið á öllum mikilvægum merkisviðburðum á Íslandi síðustu 10 árin. Til að fríska upp á minnið get ég nefnt viðburði eins og:

  • Útskrift Fjölbrautarskólans í Breiðholti 1998
  • Blústónleikar á vegum FÍH vorið 1999
  • Sæluvikukeppnin í Skagafirði 1995, 1996 og 1998
  • Páskavaka í Víðidalstungukirkju (föstudaginn langa 2007)
  • og síðast en ekki síst Jólavaka í Kaffi Viðvík á Skagaströnd á aðventunni 2004

Ef þú hefur ekki heyrt mig syngja Sveinn er það eingöngu vegna þess að þú ert algjörlega át of it hvað varðast íslenskt tónlistarlíf (wiseass).

Afsakið ég varð bara að koma þessu frá mér, ég meina....veit maðurinn ekki hver ég er eða..???? ....hahahahhahahahhaha :).