sunnudagur, janúar 13, 2008

Öppdeit

Hjá okkur er allt gott að frétta. Skvísan dafnar vel og var í síðustu ungbarnaskoðun orðin 55 cm og 5 kg (9. janúar). Eva er loksins farin að snúa sólarhringnum aftur við svo að mamma og pabbi eru farin að geta sofið aðeins á nóttunni. Hér koma nýjar myndir af skvísunni....


Eva "da gangsta" í gangstergallanum og meira segja með unglingabólur í stíl :). Myndin var tekin fyrir jól, áður en pabbi snyrti skeggið.

Stúfur kominn til byggða! Rúna amma keypti þennan fína jólakjól í Ammmeríku.

Úff...alveg uppgefin eftir jólapakkafjallið sem beið undir jólatrénu!

Baðtíminn er í miklu uppáhaldi.

Nýkomin úr baði :)
Í fína útigallanum sem Åsa og Kristin gáfu henni.

Alltaf að líkjast pabba meira og meira (Hvar fær maður svona kinnar?)

Stoltir pabbar! Kiddi frændi og Helga komu í heimsókn með Kristjönu "litlu" frænku sem er fædd 10. desember.

Eva tók hlutverk sitt sem stóra frænka mjög alvarlega og sýndi Kristjönu nánasta umhverfi.

Heima hjá Rúnu ömmu í Lyngbrekkunni með Bjarna frænda og Alexander frænda...svo erfitt að vera í heimsókn :)

3 Comments:

At 5:39 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Bara langflottust :) Alltaf gaman að sjá myndir, sérstaklega þegar maður býr svona "langt" frá.

 
At 12:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Elsku elsku Hrabbý mín og Haddi náttúrulega líka!

Innilega til hamingju með hana Evu ykkar, hún er bara langflottust... Eins og Evan okkar Kalla ;o)

Kossar og knús frá okkur öllum í Hveró,

Stella, Kalli, Jóhann Már og Eva Rut

www.johannmar.barnaland.is

aðgangsorðið er: keflavík (allt litlir stafir og íslenskt í)

 
At 4:20 e.h., Blogger Unknown said...

hæbb, ég verð nú bara að segja að þetta er fallegt fólk á myndunum og þá sérstaklega hún Eva Rún.
luv ya all.
kveðja frá öllum í norge
Eyvi

 

Skrifa ummæli

<< Home